Valin verkefni ársins 2013

Endurnýjun

Hverfisgötu og Frakkastígs

Mannvit hefur á undanförnum misserum komið að endurnýjun Hverfisgötu og Frakkastígs í miðborg Reykjavíkur en göturnar voru endurnýjaðar að öllu leyti. Verkkaupi var Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar.

 

Við endurnýjunina er skipt er um jarðveg og allar lagnir, lögð snjóbræðsla í gangstéttir og hjólastíga og yfirborð ýmist malbikað eða hellulagt, tré gróðursett  og komið fyrir lýsingu og göngugötum.

 

Mannvit sér um alla forhönnun, útboðshönnun, útboðsgögn og kostnaðaráætlanir nema hvað Arkís er undirverktaki við landslagshönnun. Hönnun rafveitu og fjarskiptalagna er í höndum eigendanna sjálfra.

„Með þessari framkvæmd eru lagðir hjólastígar í Hverfisgötu og Frakkastíg á kostnað bílastæða. Með því er borgin að hvetja íbúa til að nota almenningssamgöngur og tvo jafnfljóta í auknum mæli. Framkvæmdir sem þessar eru jafnan umdeildar og rata mikið í fjölmiðla, sérstaklega þegar tafir verða á verklokum, en þegar upp er staðið eru flestir kátir.“

Ólafur Sigurðsson

Verkefnisstjóri