Valin verkefni ársins 2013

Skólamiðstöð í Þórshöfn í Færeyjum

Mannvit hefur með höndum verkefnastjórnun og verkefnagát við byggingu nýrrar skólamiðstöðvar í Þórshöfn í Færeyjum. Miðstöðin mun hýsa Tækniskóla, Verslunarskóla og Verknámsskóla, en allir hafa þeir búið við mikil þrengsli í gamaldags byggingum. Vorið 2008 urðu því vatnaskil í menntamálum Færeyinga þegar ákveðið var að byggja nýja byggingu fyrir þessa þrjá skóla.

 

Miðstöðin mun rísa við Marknagil, í jaðri núverandi byggðar í Þórshöfn. Eigandi byggingarinnar er færeyska menntamálaráðuneytið og umsjónaraðilli framkvæmdanna er Landsverk. Verktaki flestra verkþátta er færeysk-íslenska verktakafyrirtækið TG Verk. Byggingarmagn verður 19.500 m3, með aðstöðu fyrir 1.500 nemendur. Fjárhagsáætlun verkefnisins hljóðar upp á 515 miljónir DKK en gert er ráð fyrir að byggingin verði tekin í notkun skólaárið 2016.

„Byggingin tekur mið af nútímalegum kennsluháttum og skapandi nálgun í skólastarfi. Húsnæðið þarf að geta þjónað fjölbreyttri notkun og vera sveigjanlegt fyrir áskoranir framtíðarinnar.“

Friðberg Stefánsson

Verkefnisstjóri