STJÓRNARFORMAÐUR

FORSTJÓRI

LYKILTÖLUR

MANNAUÐUR

STARFSEMIN

VERKEFNI

Valin verkefni ársins 2013

Taufkirchen jarðhitavirkjun

Mannvit vinnur að hönnun á 4 MW jarðhitavirkjun af Kalina-gerð í Taufkirchen í Þýskalandi, sem er bær í útjarðri München. GeoEnergie Taufkirchen, sem er að hluta í eigu Exorku, hyggst byggja og reka stöðina og sýna fram á hana sem álitlegan kost við nýtingu lághitasvæða. Mannvit og Exorka hafa unnið saman að slíkum virkjunum frá aldamótum.

 

Hitastig vatnsins er um 135 °C og því varð Kalina tæknin fyrir valinu en Taufkirchenstöðin verður önnur slíka stöðin sem gangsett er á þessu svæði. Virkjunin mun jafnframt framleiða 35 MWt af heitu vatni til húshitunar eða um 76 gígavattstundir árlega. Hitaveitan mun þjóna bæjunum Taufkirchen og Oberhaching og mun virkjunin minnka útblástur um 18.000 tonn af koltvíoxíði, sem annars myndast við hefðbundna orkuframleiðslu við brennslu á jarðefnaeldsneyti.

 

Meðal verkþátta Mannvits eru hönnun á lögnum, undirstöðum, burðarvirkjum og pöllum. Ennfremur kemur Mannvit að hönnun á rafkerfum og stýringum, iðntölvuforritun, aðstoð við uppkeyrslu stöðvarinnar, gerð útboðsgagna, verkefnastjórnun og aðstoð við samninga.

„Hönnunin gengur út á forsmíðaðar einingar sem lágmarka uppsetningartíma á verkstað og gefa kost á endurnýtingu við hönnun á framtíðarvirkjunum.“

Ragnar Heiðar Guðjónsson

Verkefnisstjóri