Valin verkefni ársins 2013

Stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar

Auknum ferðamannastraumi fylgja áskoranir og meðal þeirra er stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Fjölgun farþega milli ára hefur verið á bilinu 15 til 18% síðastliðin 2-3 ár. Mannvit hefur með höndum alla raflagna- og lýsingarhönnun við núverandi stækkun suðurbyggingar til vesturs. Góð reynsla er komin á samstarfið því að hönnun á öllum tæknikerfum flugstöðvarinnar hefur frá upphafi verið unnin af Mannviti. Núverandi stækkun verður u.þ.b. 5.000 fermetrar á tveimur hæðum ásamt kjallara.

 

Nýbyggingin tengist núverandi byggingu og er ætluð fyrir farþega innan og utan Schengen svæðisins. Möguleiki verður á að bæta þriðju hæðinni við. Fjárhagsáætlun verkefnisins er á milli 2,5 – 3,5 milljarðar króna.

 

Flugstöðvar eru flóknar byggingar, en Mannvit hannar t.d. aðgangsstýrikerfi, hljóðkerfi, brunaviðvörunarkerfi, myndavélakerfi, flugupplýsingakerfi, ýmis hússtjórnarkerfi og tölvu- og símalagnakerfi. Einnig hefur Mannvit með höndum alla hönnun og útboðsgagnagerð um þann búnað og lagnir sem þarf til að landtengja flugvélar, ásamt flughlaðslýsingu.

 

Öll hönnun raf- og lýsingarkerfa miðast við nýjustu tækni. Orkusparandi búnaður er notaður, öll orkunotkun mæld og kerfunum miðstýrt.

„Mikil aukning farþega í tengiflugi gerir það að verkum að á álagstímum verður þröngt á ákveðnum svæðum. Þessi stækkun hefur í för með sér að farþegarnir dreifast meira um bygginguna og flugvöllurinn getur annað a.m.k. 3,5 milljónum farþega árið 2015.“

Jens Pétur A. Jensen

Verkefnisstjóri